Fréttir

  • Vegna breytinga þá er innra netið lokað. Við munum opna það aftur fjótlega með breyttu sniði sem mun nýtast bæði þjálfurum og iðkendum vel.
    meira
  • Um helgina voru haldnir fyrstu Metabolic Leikarnir. Keppt var í liðakeppni, 4 saman í liði.
    meira
  • Metabolic leikar og árshátíð verða 5. maí á Ásbrú í Reykjanesbæ. Keppt verður í liðakeppni, 4 saman í liði, frjálst val um kynjahlutfall. Um kvöldið verður haldin árshátíð Metabolic til að fagna saman okkar fyrsta vetri sem fór langt fram úr öllum væntingum.
    meira

Innskrįning

 
 
 
Helgi Jónas Guðfinnsson
 
Helgi Jónas Guðfinnsson er fæddur 18. apríl 1976. Giftur Arnfríði Kristinsdóttir og á tvö börn, Arnór Tristan og Anítu Rut.
Hann ólst upp á Neskaupsstað en 11 ára flutti hann til Grindavíkur þar sem hann býr enn. Frá unga aldri þá var Helgi mikið í íþróttum og hefur hann stundað flestar íþróttir en hann var samt mest á skíðum, fótbolta og körfubolta. Hans aðalgrein var körfubolti og á hann bæði landsleiki með unglingalandsliðum og A-landslið Íslands. Árið 1998 flutti Helgi til Hollands þar sem hann gerðist atvinnumaður í körfubolta og spilaði hann fyrir Donar í Gronigen. Eftir eitt ár í Hollandi þá flutti hann sig um set og átti frábært ár í Antwerp þar sem hann fagnaði bæði belgíumeistara- og bikarmeistaratitlinum. Árið eftir spilaði hann með Leper í Belgíu en það tímabil endaði ekki eins vel því liðið fór á hausinn. Eftir þetta tímabil flutt Helgi aftur til Íslands og spilaði hann þar í nokkur ár með Grindavík en bakmeiðsli gerðu honum erfitt fyrir og því varð hann að leggja skóna á hilluna 29 ára gamall. Helgi tók hins vegar skóna fram árið 2009, 33ja ára gamall og spilaði tímabilið með gamla liðinu sínu Grindavík. 
Undanfarin ár hefur Helgi eitt miklum tíma í að mennta sig á sviði þjálfunar en mottó hans í lífinu er "Never stop learning“ og honum þykir mikilvægt að fólk haldi áfram að lesa og bæta við sig menntun. Vilji fólk verða á toppnum á sínu sviði þá þarf að endurmennta sig, annars dregst það bara aftur úr.
Helgi hefur kennt þjálfun við ÍAK einkaþjálfaranám Keilis frá árinu 2007. Auk kennslunnar er Helgi aðstoðarlandsliðsþjálfari karla í körfubolta og aðalþjálfari karlaliðs Grindavíkur í körfu. Þá tekur Helgi að sér einstaklinga í einkaþjálfun og heldur úti fjarþjálfun í gegnum þessa heimasíðu.
Helgi skrifaði bókina „Your Ultimate Fat Loss System“ bókin endurspeglar hans hugmyndafræði um hvernig eigi að léttast. Mikil vinna var lögð í bókina en hún byggir að mestu á niðurstöðum vísindalegra rannsókna um þjálfun og næringu. Í bókinni er þung áhersla lögð á sálræna þáttinn, þ.e. hvernig eigi að undirbúa sig andlega fyrir breytingu á lífsstíl en Helgi telur að ef sálræni þátturinn er ekki tekinn inn í undirbúninginn eru miklar líkur á að lífsstílsbreytingin mistakist.

 Menntun:

  • CHEK Practitioner level 2 
  • BioSignature level 1
  • NASM Certified Personal Trainer
  • NASM Performance Enhancment Specialist
  • NASM Corrective Exercise Specialist
  • Advanced Metabolic Typing Advisor
  • ISSA Certified Fitness Trainer
  • Maxbells Kettlebells Instructor
  • Maxbells Bodyweight Instructor
  • Íþróttabraut frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Óklárað:

  • Resistance Training Specialist level 1
 

Námskeið:

  • Athletic Speed Formula (4x)- Lee Taft
  • Posturology level 1 – Yves Ethier
  • Scientific core conditioning – CHEK Institute
  • Swiss ball training – CHEK Institute
  • Scientific back training – CHEK Institute
  • Program design – CHEK Institute
  • Dynamic Medicine Ball Training – CHEK Institute
  • Advanced Swiss Ball Training for Rehabilitation – CHEK Institute
  • Primal Pattern Movements: A Neurodevelopmental Approach to Conditioning – CHEK Institute
  • Equal but not the same – CHEK Institute
  • Advanced Program Design – CHEK Institute
  • Talking Function with Gary Gray – PtOnTheNet.com
  • Introduction to Kettlebells  með Steve Cotter, Steve Maxwell og Völu Mörk
 

Fyrirlestrar:

  • Balance begins in your mouth - Paul Chek
  • Functional anatomy for fintess professionals - Paul Chek
  • Horomones: A Critical Link to Health, Performance and Consciousness - Paul Chek
  • Exercise and Stress Management - Paul Chek
  • The Unity of Spirit and Exercise - Paul Chek
  • Ph. D in push up - Juan Carlos Santana
  • Back training for the new millineum – Juan Carlos Santana
  • Æfingar fyrir Golfara – Guðjón Bergmann
  • Næringarfyrirlestur – Udo Erasmus
  • Hversu fljótt á að byrja eftir meiðsli – Einar Einarsson